top of page


STAFRÆNN HRAÐALL

fyrir kennara

Fyrir:

Kennara, fræðslustjóra, stjórnendur í menntastofnunum og aðra sem vilja afla sér verkfæra og fræðslu sem hjálpar þeim að koma böndum yfir þann mikla meðbyr sem nemendur geta nú skapað sér í námi með notkun gervigreindar, með því að vígbúast sjálfir með gervigreind að vopni. 

 

Hraðallin tekur fyrir lausnir fyrir kennslu, nám, tímastjórnun og skipulag, og aðrar áskoranir sem hópurinn stendur frammi fyrir.

Stafrænn hraðall fyrir kennara.jpg

Fullt verð kr. 49,900

Þátttaka í kynningarhraðli kr. 28,900

Þátttaka í þróunarhraðli kr. 0,00


Skráðu þig hér! 

Smelltu á hnappinn til að óska eftir skráningu í Stafrænan hraðal Þjónustuveitunnar.

Þegar okkur hefur borist umsókn frá þér, færð þú sendan tölvupóst með skilmálum og greiðsluupplýsingum. Þú staðfestir því aðeins skráningu með greiðslu.  

Hraðall fyrir kennara til að þróa kennsluhætti framtíðarinnar

Hröð þróun á sviði gervigreindar hefur komið kennurum í opna skjöldu, og eru menntastofnanir um allan heim nú að leita leiða til að koma böndum yfir þann mikla meðbyr sem nemendur geta skapað sér í náminu með notkun gervigreindar. Ein besta leiðin til þess er að kennarar læri sjálfir á notkunarmöguleika gervigreindar í námi svo þeir geti aðlagað kennsluhætti sína, verkefnavinnu og prófafyrirkomulag að þessum nýja veruleika.

Stafræn tækni býður einnig upp á fjölbreytt tækifæri fyrir kennara til að straumlínulaga sína starfshætti, uppfæra kennsluhætti og bæta gæði náms fyrir nemendur sína.

Stafrænn hraðall þjónustuveitunnar

Á stafrænum hraðli Þjónustuveitunnar koma saman 6-8 þátttakendur sem starfa á sama sviði og hafa áhuga á að innleiða stafræna tækni í sína starfshætti og starfsemi.

Ekki er krafist mikillar tæknikunnáttu en til að geta tekið virkan þátt í vinnustofum er nauðsynlegt að þátttakendur hafi lágmarks læsi á sitt eigið tölvuumhverfi og einhverja reynslu af því að vinna með sína eigin tölvu og/eða snjalltæki.

Þátttakendur mæta jafnframt á vinnustofurnar með þau tæki sem þeir nota helst í sínum faglegu störfum; snjallsíma, spjaldtölvur og/eða fartölvur.

Til að allir þátttakendur njóti góðs af hraðlinum, er nauðsynlegt að hver og einn þátttakandi skuldbindi sig til að:

  • Mæta á fyrstu tvær vinnustofurnar.

  • Prófa eitt stafrænt verkfæri í sínu faglega umhverfi í eina viku.

  • Flytja stutta kynningu á niðurstöðum prófana og svara spurningum.

Þátttakendur eru hvattir til að velja sér minnst eina stafræna lausn til að vinna með næsta mánuðinn, og þá jafnframt að mæta á þriðju og síðustu vinnustofuna til að deila upplifun sinni með öðrum þátttakendum.

Þátttakendur í þróunar- og kynningarhröðlum skuldbinda sig jafnframt til að skila umsögn um upplifun sína að hraðlinum loknum.


Næstu dagsetningar stafrænna hraðla fyrir kennara

Þróunarhraðall*

*Ókeypis þátttaka og einungis opinn boðsgestum.

  • Vinnustofa #1

Borgartúni 28, 105 Reykjavík

Fimmtudaginn 7. desember 2023 kl. 19:30-22:30.

 

  • Vinnustofa #2

Borgartúni 28, 105 Reykjavík

Fimmtudaginn 14. desember 2023 kl. 19:30-22:30.

 

  • Vinnustofa #3

Netfundur á Teams

Fimmtudaginn 04. janúar 2024 kl. 20:30-21:30.

 

Kynningarhraðall*

*Sérstakt kynningarverð til fyrstu þátttakenda, skráning öllum opin.

  • Vinnustofa #1

Reykjavík

Föstudaginn 3. maí 2024 kl. 19:30-22:30.

 

  • Vinnustofa #2

Reykjavík

Föstudaginn 10. maí 2024 kl. 19:30-22:30.

 

  • Vinnustofa #3

Netfundur á Teams

Föstudaginn 31. maí 2024 kl. 20:30-21:30.


Biðlisti

​Ef ofangreindar dagsetningar henta þér ekki, þá geturðu skráð þig á biðlista og við látum þig þá vita þegar næstu dagsetningar liggja fyrir. 

Þú einfaldlega fyllir út formið eins og þú ætlir að skrá þig í hraðal,

og hakar svo við *Biðlisti*.

bottom of page